Hrekkjavaka
Söngvasel
Glænýtt íslenskt hrekkjavökulag, sungið af krökkunum í Söngvaseli. Tónlistarmyndbandið verður frumsýnt á YouTube laugardaginn 24. október kl. 10:00.
Frumsýningin er hafin – horfðu núna!
Frumsýning á YouTube laugardaginn 24. október kl. 10:00
Hrekkjavaka er komið út á öllum helstu tónlistarveitum
Ýttu á ⊕ í Spotify til að vista lagið og settu það á hrekkjavökulistann þinn. Hver vistun hjálpar laginu að ná lengra.
LagatextiSyngdu með – Hrekkjavaka
Ég heyri fótatak svo hljótt
Það læðist eitthvað út í nótt
Skuggar færast nær og nær
Mynda risastórar klær
Grikk eða gott!
Nú í kvöld er dimmt og kalt
Grikk eða gott!
Draugar svífa um allt!
Grikk eða gott!
Ég heyri hljóð, en hver er þar?
Grikk eða gott!
Bú!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Nornir fljúga himinhátt
Beinagrindur dansa dátt
Leðurblökur, köngulær
Skrímsli koma nær og nær!
Grikk eða gott!
Nú í kvöld er dimmt og kalt
Grikk eða gott!
Draugar svífa um allt!
Grikk eða gott!
Ég heyri hljóð, en hver er þar?
Grikk eða gott!
Bú!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Heyri skref – en enginn þar
Sný mér við – jó, hver var þar?
Svartur köttur, glóandi brá
Vampíra mætt með tennurnar á
Grasker glottir, ljósin blikka
Zombie-in þau byrja að klikka
Boom, boom, boom og bassinn slær
Skrímslin koma nær, nær!
Norn á kústi flýgur hjá
Köngulóin skríður smá
Beinagrind með geggjað swag
Dansar við sitt Halloween-lag
Grikk eða gott!
Nú í kvöld er dimmt og kalt
Grikk eða gott!
Draugar svífa um allt!
Grikk eða gott!
Ég heyri hljóð, en hver er þar?
Grikk eða gott!
Bú!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Nú er hrekkjavaka!
Lag og texti: Íris Rós Ragnhildardóttir
Söngur. Dans.
Sviðslistir.
Söngvasel er vettvangur fyrir krakka sem vilja syngja, dansa og kynnast sviðslistum í lifandi og skapandi umhverfi. Kórstjóri er Íris Rós.
Viltu vera með í Söngvaseli?
Æfingar í Seljakirkju á fimmtudögum kl. 15:00–16:00. Þátttaka er ókeypis.